Hanna betri og öruggari aðkomu og útkeyrslu við Versali - Fífuhvammsveg.
Erfitt að beygja til vinstri þegar keyrt er út úr Versölum. Alltof þröngt og mikil umferð, oft þarf að bíða lengi til þess að komast örugglega í gegnum umferðina. Stundum sleppi ég því og fer frekar heilhring í hringtorginu við Salaveg þegar umferðarþunginn er mikill. Þetta kemur Arnarnesveginum ekkert við þar sem mörg hundruð iðkendur eru keyrðir og sòttir í Gerplu, nemendur eru keyrðir og sóttir í Salaskóla og fólk sækir í sundlaug og rækt. Strætó keyrir þarna um og er svæðið löngu sprungið.
Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Okkar Kópavogur og fer því ekki í kosningu. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndaferlinu og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins Okkar Kópavogur er farin af stað og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á heimasíðu verkefnisins www.kopavogur.is/okkarkopavogur
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation