finnst nauðsynlegt ad setja gönguljós yfir fjórfaldar akreinar hja hringtorginu á dalvegi hja bónus i smáratorgi..virkilega hættulegt ad ganga þarna yfir vegna mikillar umferðar og hættu á ad einungis annar bíllinn á tvöföldum akreinum stoppi .. myndi auðvelda og skapa öryggi allra og þá serstaklega barna og öldruðum
@jóhannes veit það en því miður er það þannig að þegar börnin eru að fara á metro, coolshop eða Bónus þá finnst þeim styttra að fara yfir þessar göngubrautir
Sammála er alltaf með í maganum þegar börnin fara yfir þessar götur hjá þessu hringtorgi. Væri líka spurning um brú yfir eða undirgöng
@Birna Það eru undirgöng hundrað metrum norðar, við hringtorgið þar.
finnst nauðsynlegt ad setja gönguljós yfir fjórfaldar akreinar hja hringtorginu á dalvegi hja bónus i smáratorgi..virkilega hættulegt ad ganga þarna yfir vegna mikillar umferðar og hættu á ad einungis annar bíllinn á tvöföldum akreinum stoppi .. myndi auðvelda og skapa öryggi allra og þá serstaklega barna og öldruðum
Gangbrautirnar á Dalveginum fara yfir 2+2 veg og þurfa að vera upphækkaðar til að vera eftir bestu gangbrautarhönnun, ásamt sérlýsingu yfir þeim. Forgangur bílaumferðar um þetta hringtorg er of mikill og þessi lausn myndi hægja verulega á umferð um það.
Undirgöng (eða brú) hér myndu fjölga gangandi í verslanir við Smáratorg (fækka bílferðum).
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation